Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 07. júní 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Endrick hetjan gegn Egyptalandi - Messi hvíldur í tveggja marka sigri
Endrick skoraði sigurmark Brasilíu
Endrick skoraði sigurmark Brasilíu
Mynd: EPA
Lautaro skoraði og lagði upp
Lautaro skoraði og lagði upp
Mynd: EPA
Hinn 19 ára gamli Endrick var hetja Brasilíumanna í 2-1 sigrinum á Egyptum í æfingaleik í Cleveland í Bandaríkjunum í nótt. Argentína og Curacao unnu þá góða sigra.

Carlo Ancelotti stillti upp gríðarlega sterku liði gegn Egyptum en þó ekki sínu besta liði.

Hann hefur breytt liðinu mörgum sinnum síðasta árið, en það verður byggt í kringum Gabriel, Marquinhos, Casemiro, Bruno Guimaraes, Raphinha og Vini Jr.

Guimaraes skoraði einmitt fyrra mark Brasilíu gegn Egyptum í kvöld en Mostafa Ziko jafnaði aðeins nokkrum mínútum síðar.

Endrick kom inn af bekknum í síðari hálfleik og skoraði sigurmark fyrir Brassa. Annar höfuðverkur fyrir Ancelotti, en Endrick spilaði frábærlega síðari hluta tímabilsins með Lyon á láni frá Real Madrid.

Ancelotti fékk annan höfuðverk snemma í leiknum er hægri bakvörðurinn Wesley Franca meiddist sem þýðir að Danilo gæti byrjað fyrsta leik hjá liðinu.

Þetta var síðasti æfingaleikur Brasilíumanna fyrir HM, en fyrsti leikur þeirra á mótinu er gegn Marokkó eftir viku. Ancelotti á Neymar inni sem er að jafna sig af meiðslum, en hann ætti að vera orðinn klár fyrir Marokkóleikinn.

Tyrkland vann 2-1 sigur á Venesúela. Tyrkir lentu undir snemma leiks en Baris Yilmaz jafnaði undir lok fyrri hálfleiks áður en Yunus Akgun, samherji Yilmaz hjá Galatasaray, gerði drauma sigurmark er hann tók boltann á lofti fyrir utan teig og klíndi honum í netið.

Tyrkir eru klárir fyrir HM. Þeir mæta Ástralíu eftir viku, en þeir eru einnig í riðli með Paragvæ og Bandaríkjunum.

Argentína vann Hondúras 2-0. Lautaro Martínez skoraði úr vítaspyrnu og þá gerði Giuliano Simeone annað markið.

Lionel Messi var ónotaður varamaður í annars mjög sannfærandi sigri heimsmeistaranna.

Argentína mætir Íslandi í síðasta æfingaleiknum fyrir HM en hann er spilaður í Auburn í Alabama klukkan 01:00 aðfaranótt miðvikudags. Messi mun væntanlega spila þann leik fyrst hann var hvíldur í nótt.

Dick Advocaat og lærisveinar hans í Curacao unnu 4-0 sigur á Arúba og þá marði Suður-Afríka 1-0 sigur á Jamaíku.

Brasilía 2 - 1 Egyptaland
1-0 Bruno Guimaraes ('7 )
1-1 Mostafi Ziko ('11 )
2-1 Endrick ('52 )

Venesúela 1 - 2 Tyrkland
1-0 Gleiker Mendoza ('13 )
1-1 Baris Yilmaz ('44 )
1-2 Yunus Akgun ('54 )

Argentína 2 - 0 Hondúras
1-0 Lautaro Martínez (‘37, víti )
2-0 Giuliano Simeone (‘54 )

Curacao 4 - 0 Arúba
1-0 Joshua Brenet (‘53 )
2-0 Jeremy Antonisse (‘68 )
3-0 Livano Comenencia (‘83 )
4-0 Juninho Bacuna (‘90 )

Jamaíka 0 - 1 Suður- Afríka
0-1 Oswin Appollis (‘32 j


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner