Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 07. júní 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Forseti Como: Boltinn er hjá Real Madrid
Mynd: EPA
Mirwan Suwarso, forseti Como á Ítalíu, segist bíða eftir að spænska félagið Real Madrid taki ákvörðun varðandi framtíð argentínska leikmannsins Nico Paz.

Paz hefur verið aðalmaðurinn í liði Como síðan hann kom til félagsins frá Real Madrid fyrir tveimur árum.

Hann var einn af bestu leikmönnum ítölsku deildarinnar er Como komst í Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins í síðasta mánuði.

Real Madrid er með níu milljóna evra endurkaupsrétt á Paz, en samkvæmt helstu fjölmiðlum Ítalíu og Spánar, mun félagið nýta sér hann.

Ekki verður greint frá skiptunum fyrr en eftir forsetakosningarnar hjá Real Madrid. Suwarso, forseti Como, heldur í vonina að hann verði áfram, en segir það ekki vera með ákvörðunarvaldið.

„Verður Nico Paz áfram í ár til viðbótar? Það er Real Madrid sem tekur þá ákvörðun. Við erum að bíða, en boltinn er hjá þeim,“ sagði Suwarso.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp