Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 14:23
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Jason Daði skoðar aðstæður hjá ÍA og fleiri félögum
Jason Daði Svanþórsson.
Jason Daði Svanþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Umrædd mynd af Jasoni skoða aðstæður á Akranesi.
Umrædd mynd af Jasoni skoða aðstæður á Akranesi.
Mynd: Facebook
„Jason Daði er að skoða sig um á nokkrum stöðum og þar á meðal hjá okkur. Við buðum honum bara í heimsókn, tókum smá spjall og það var ekki stærra en það,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, í samtali við Vísi.

Líklegt er að Jason Daði Svanþórsson sé á leið í Bestu deildina að nýju eftir að hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá Grimsby.

Mynd náðist af honum vera að ræða við Ingimar og Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, á Akranesvelli og var hún birt inn á Facebook hópnum 'Dr Football - Leikmenn'.

Í samtali við Vísi var Ingimar spurður að því hvort fleiri lið en ÍA væru í baráttunni um Jason?

„Ég veit það ekki, er það ekki langlíklegast? Að öll lið séu eitthvað að spjalla við hann. Ég myndi hugsa það. KR, Breiðablik og þessi lið sem hafa verið í umræðunni…" svaraði hann.

Jason. sem er 26 ára, leikinn kantmaður, er samningslaus eftir að hafa verið hjá Grimsby í tvö ár, en hann var seldur þangað frá Breiðabliki. Á nýafstöðnu tímabili kom hann aðeins við sögu í sjö leikjum sökum mikilla meiðsla.

Jason Daði hefur verið sterklega orðaður við KR en hann er sagður vilja vinna aftur undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Miðað við heimsókn hans á Skagann er þó alveg ljóst að hann vill skoða alla mögulega kosti áður en hann tekur ákvörðun.
Slapp
banner
banner