Fotbolti.net
07.07.17 - 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Graham Dorrans til Rangers (Staðfest)

Graham Dorrans er kominn heim til Skotlands

Graham Dorrans er kominn heim til Skotlands

Canon

Mynd: Getty Images

Skotinn Graham Dorrans er genginn til liðs við skoska stórliðið Glasgow Rangegrs en hann kemur til félagsins frá Norwich. Dorrans skrifaði undir þriggja ára samning.

Kaupverðið á Dorrans er 1.3 milljónir punda en hann varð þrítugur í þessari viku. Dorrans fór í læknisskoðun hjá félaginu í gær.

Dorrans hóf ferilinn sinn hjá skoska félaginu Livingston áður en hann fór til WBA árið 2008.

Hann segir að félagaskiptin til Rangers hafi verið eitthvað sem hann hefur dreymt um frá unga aldri.

<i>„Ég vil koma og hjálpa ungu strákunum og ég vil trúa því að ég geti komið með reynslu eftir að hafa spilað á háu stigi í 10 ár,\"</i> sagði Dorrans við heimasíðu Rangers.

Rangers endaði í 3. sæti skosku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en félagið datt út með skömm í Evrópudeildinni á miðvikudag eftir að hafa tapað gegn áhugamannaliði frá Lúxemborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.