Fotbolti.net
07.07.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Mathias Jörgensen til Huddersfield (Staðfest)

Mathias Jorgensen.

Mathias Jorgensen.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Huddersfield hafa keypt danska varnarmanninn Mathias Jörgensen frá FC Kaupmannahöfn.

Hinn 27 ára gamli Jörgensen kostaði um það bil 3,5 milljónir punda en hann skrifaði undir þriggja ára samning.

„Mathias er enn ein mjög góð viðbót við hópinn fyrir fyrsta tímabil okkar í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði David Wagner stjóri Huddersfield.
Huddersfield er með veskið á lofti þessa dagana en Jörgensen er áttundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins á sjö dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.