Fotbolti.net
07.07.17 - 17:10
Magnús Már Einarsson

Walters til Burnley (Staðfest)

Walters til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur fengið framherjann Jonathan Walters í sínar raðir frá Stoke.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé í kringum þrjár milljónir punda.

Walters skrifaði sjálfur undir tveggja ára samning við Burnley en þar verður hann meðal annars liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar.

Walters er 33 ára gamall írskur landsliðsmaður en hann lék yfir 250 leiki á ferli sínum með Stoke.

Hann fer til heimalandsins á mánudaginn því Burnley fer þá þangað í æfingaferð.

SIGNING | Introducing the latest addition to the Clarets... pic.twitter.com/ar2mX312OB

— Burnley FC (@BurnleyOfficial) July 7, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.