HK vann frábæran sigur á nágrönnum sínum í Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld.
Atli Arnarson skoraði tvisvar fyrir HK áður en Þórir Guðjónsson minnkaði muninn undir lokin með sínu fyrsta marki í Pepsi Max-deildinni fyrir Blika. Heimamenn pressuðu síðustu mínúturnar en tókst ekki að koma inn marki.
Lokatölur 2-1 og mikilvæg stig fyrir HK í fallbaráttunni í Pepsi Max-deildinni. Á meðan tapaði Breiðablik mjög svo mikilvægum stigum í titilbaráttunni.
Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, birtir mynd á Instagram í kvöld af leikmönnum HK ásamt Bjarka Má Sigvaldasyni og eiginkonu hans.
Bjarki Már lést í lok síðasta mánaðar eftir næstum sjö ára baráttu við krabbamein í ristli. Bjarki Már var leikmaður HK áður fyrr en þurfti að leggja skóna á hilluna vegna meinsins.
Við myndina í kvöld skrifar Leifur: „Okkar fyrirliði & fyrirmynd."
Myndina má sjá hérna fyrir neðan.
Athugasemdir