ESPN segir að allt stefni í kapphlaup á milli Manchester City og Juventus um Adama Traore kantmann Wolves.
Hinn 24 ára gamli Traore hefur átt frábært tímabil en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp níu með Úlfunum.
Hinn 24 ára gamli Traore hefur átt frábært tímabil en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp níu með Úlfunum.
Traore gæti þó verið áfram hjá Úlfunum ef þeir enda í topp fjórum á Englandi og ná sæti í Meistaradeildinni.
Úlfarnir gætu einnig náð sæti í Meistaradeildinni með því að vinna Evrópudeildina.
Traore var í unglingaliðum Barcelona en þar á bæ hafa menn ekki fjármagn í að berjast um leikmanninn í sumar. Ef Traore verður áfram hjá Wolves gæti Barcelona reynt við hann næsta sumar.
Athugasemdir