Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 07. júlí 2022 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Joe Allen á leið þangað sem þetta allt saman byrjaði
Joe Allen.
Joe Allen.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Joe Allen er hugsanlega á leið aftur þangað sem ferill hans hófst, til Swansea City.

Sky Sports segir frá því í dag að Swansea sé í viðræðum við Allen sem er án félags þessa stundina eftir að hafa yfirgefið herbúðir Stoke City.

West Ham er að kaupa miðjumannninn Flynn Downes frá Swansea á 10 milljónir punda og kemur Allen til með að fylla skarð hans.

Allen er sagður ætla skrifa undir tveggja ára samning við Swansea og mun hann fara aftur á fornar slóðir.

Hann kom í gegnum akademíu félagsins og spilaði 150 leiki fyrir Swansea áður en hann fór til Liverpool fyrir 15 milljónir punda fyrir tíu árum síðan. Allen, sem er 32 ára, hefur leikið með Stoke frá 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner