Nikolaj Hansen eftir sigur gegn Györ: Sorglegt að sjá


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Víkingar fagna sigri kvöldsins.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Niko fórnaði andlitinu fyrir mark.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Víkingur tók á móti ungversku meisturunum Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrri leik liðanna. Leiknum lauk með 1-0 sigri Víkinga en sá sigur hefði getað verið töluvert stærri. Nikolaj Hansen skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og fékk spark í andlitið í sömu andrá. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í kappanum eftir leikinn.
„Við spiluðum mjög góðan leik og vorum betra liðið í dag. Á sama tíma þá hefði ég viljað vinna leikinn með meira en bara einu marki, við fengum góð tækifæri í dag en samt gott að vinna í lok leiks.''
Györ eru ungverskir meistarar en spiluðu ekki eins og þeir væru það hér í dag þar sem þeirra eina plan var að fá ekki á sig mark. Víkingar voru með yfirburði á vellinum allan leikinn, kom það Niko á óvart?
„Já þetta kom mér smá á óvart, við vorum búnir að horfa á myndbönd frá síðustu leikjum sem þeir voru búnir að spila og ég var hissa hvernig þetta var. Það eru margir sem koma hingað hræddir að spila við okkur en við erum búnir að sýna góðar frammistöður og góð úrslit gegn geggjuðum liðum og gerðum það aftur í dag.''
Niko skoraði sigurmarkið en hvernig var tilfinningin?
„Tilfinningin var bara ógeðslega góð, ég er ekki búinn að spila mikið í ár og búinn að vera meiddur. Þetta er fyrsti leikurinn sem ég fæ að spila stóran hluta af og það er gott að fá mig í gang. Á sama tíma er það sorglegt að sjá þegar Elías meiddist.''
Mikil reynsla er í Víkingsliðinu sem hefur spilað marga stóra leiki á síðustu árum.
„Það hjálpað 100 prósent, núna erum við bara komnir með svo gott lið að við getum ekki verið hræddir við að spila svona stóran leik en við þurfum að njóta líka.''

Víkingar fagna sigri kvöldsins.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Niko fórnaði andlitinu fyrir mark.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson



