Fotbolti.net
07.08.16 - 13:37
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Sansone til Villarreal (Staðfest)

Nicola Sansone

Nicola Sansone

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarliðið Villarreal hefur gengið frá kaupum á ítalska sóknarmanninum Nicola Sansone frá Sassuolo.
Þessi 24 ára gamli leikmaður gerir fimm ára samning við Villarreal en Sansone skoraði sjö mörk fyrir spútniklið Sassuolo í Serie A á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni.

Sansone er fæddur og uppalinn í Þýskalandi og var á mála hjá Bayern Munchen á sínum yngri árum en hann er með ítalskan ríkisborgararétt og hefur leikið fyrir öll yngri landslið Ítala og á að auki einn A-landsleik að baki.

Hann er annar Ítalinn sem gengur í raðir Villarreal á stuttum tíma því Roberto Soriano kom til spænska liðsins frá Sampdoria á dögunum en Villarreal endaði í 4.sæti La Liga á síðustu leiktíð.

Villarreal á því möguleika á sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á komandi leiktíð en fyrst þarf liðið að leggja Monaco að velli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.