Fotbolti.net
07.08.16 - 10:35
Arnar Geir Halldórsson

Scott Sinclair til Celtic (Staðfest)

Mættur í skoska boltann

Mættur í skoska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Scott Sinclair er genginn til liðs við skoska stórveldið Celtic frá enska B-deildarliðinu Aston Villa.
Brendan Rodgers, stjóri Celtic, hefur lagt mikla áherslu á að fá þennan 27 ára kantmann til liðs við sig en þeir þekkjast vel eftir að hafa unnið saman hjá Swansea á sínum tíma.

Sinclair gerir fjögurra ára samning við Celtic eftir að hafa eytt einu og hálfu ári hjá Aston Villa.

Hann skoraði tvö mörk í 21 leik fyrir Villa þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Sinclair leikur í öðru landi en heimalandinu en hann hefur leikið fyrir tólf ensk félagslið á ferli sínum.

📝 Celtic delighted to sign @Scotty_Sinclair: https://t.co/hsxzjsQQDu #WelcomeSinclair (LA) pic.twitter.com/WCjiWXaB90

— Celtic Football Club (@celticfc) August 7, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.