Fotbolti.net
07.08.17 - 14:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Davy Pröpper til Brighton fyrir metfé (Staðfest)

Davy Pröpper til Brighton fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter

Brighton hefur keypt hollenska miðjumanninn Davy Pröpper frá PSV Eindhoven fyrir 6 milljónir punda.

Hann er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Brighton.

Pröpper skrifaði undir fjögurra ára samning við Brighton, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta er í annað skipti í sumar sem Brighton bætir félagsmet sitt, en áður var þegar félagið borgaði 5 milljónir punda til þess að landa markverðinum Matthew Ryan frá spænska liðinu Valencia.

„Þetta er stærsta deild í heimi og þetta verður frábær áskorun, áskorun sem ég er tilbúinn fyrir, sagði Pröpper.

Fyrsti leikur Brighton í ensku úrvalsdeildinni verður mjög erfiður. Þeir fá Manchester City í heimsókn á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.