Fotbolti.net
07.08.17 - 21:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Stoke fær landsliðsmann Kamerún (Staðfest)

Choupo-Moting er kominn til Stoke

Choupo-Moting er kominn til Stoke

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City hefur styrkt leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.

Landsliðsmaður Kamerún, Eric Maxim Choupo-Moting hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stoke.

Choupo-Moting kemur frítt til Stoke en síðustu þrjú tímabil lék hann með Schalke í þýsku úrvalsdeildinni.

Choupo-Moting á þýska móður og fæddist í Þýskalandi. Hann lék með þýska U19 ára landsliðinu og var í leikmannahópi Þýskalands á Evrópumóti U21 árs landsliða árið 2011 en á sama móti léku einmitt Íslendingar.

Faðir Choupo-Moting er frá Kamerún og var hann fyrst kallaður í landsliðshóp Kamerún árið 2010 og var hann í leikmannahópi Kamerún á Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku árið 2010.

Hann spilaði einnig á Heimsmeistaramótinu árið 2014 í Brasilíu með Kamerún en alls hefur hann leikið 42 leiki fyrir Kamerún og skorað 13 mörk en Choupo-Moting er framherji
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.