Fotbolti.net
07.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Torino fær N\'Koulou á láni frá Lyon (Staðfest)

N\'Koulou skrifar undir.

N\'Koulou skrifar undir.

Canon

Mynd: Heimasíða Torino

Ítalska úrvalsdeildarfélagið Torino hefur fengið varnarmanninn Nicolas N\'Koulou á láni frá Lyon.

Lánssamningurinn gildir út tímabilið, en Torino fær forkaupsrétt á honum að tímabilinu loknu.
N\'Koulou, sem er frá Kamerún, kom til Lyon fyrir síðasta tímabil eftir fimm góð ár hjá Marseille.

Hann náði ekki að heilla hjá Lyon. Hann spilaði aðeins 13 leiki í frönsku úrvalsdeildinni og var í vandræðum.

Þessi sterki varnarmaður hefur ákveðið að prófa eitthvað nýtt. Hann mun spila á Ítalíu á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.