Fotbolti.net
07.08.17 - 22:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

West Ham fær liðsfélaga Höskuldar (Staðfest)

Haksabanovic í læknisskoðuninni

Haksabanovic í læknisskoðuninni

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham er búið að fá framherjann unga Sead Haksabanovic.

Haksabanovic er 18 ára gamall og er nú þegar búinn að ganga í gegnum læknisskoðun og hefur skrifað undir fimm ára samning við West Ham.

Haksabanovic kemur frá sænska félaginu Halmstad en með því leikur Blikinn Höskuldur Gunnlaugsson en hann gekk til liðs við félagið í júlí.

Haksabanovic lék 18 leiki og skoraði 4 mörk fyrir Halmstad á þessu tímabili en hann hefur leikið með yngri landsliðum Svía.

Hann á hins vegar ættir að rekja til Svartfjallalands og kaus að leika með þeim. Hann lék sinn fyrsta A-landsliðsleik í júní á þessu ári þegar hann kom inn á gegn Albaníu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.