Fotbolti.net
07.08.18 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arsenal lánar Chambers til Fulham (Staðfest)

Calum Chambers spilar með Fulham á þessu tímabili.

Calum Chambers spilar með Fulham á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Fulham

Fulham var að fá varnarmanninn Calum Chambers á lánssamningi frá Arsenal.
Chambers, sem er 23 ára, skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við Arsenal í síðasta mánuði en mun verja komandi tímabili hjá Fulham.

„Ég er mjög spenntur. Ég horfði mikið á Fulham á síðasta tímabili, ég kann mjög vel við það hvernig liðið spilar fótbolta. Þetta er frábært félag, hér er góður stjóri og ég er spenntur fyrir tímabilinu,\" sagði Chambers.

Unai Emery, stjóri Arsenal, segir að Chambers eigi sér framtíð hjá Arsenal þó svo að honum sé leyft að fara á láni.

Fulham er nýliði í ensku úrvalsdeildinni en félagið hefur styrkt sig gríðarlega í sumar og er Chambers sjöundi leikmaðurinn sem bætist við leikmannahópinn. Leikmenn eins og Alfie Mawson, Jean Michel Seri og Andre Shurrle eru komnir og þá var Aleksandr Mitrovic keyptur frá Newcastle eftir að hafa verið á láni á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.