Fotbolti.net
07.08.18 - 09:34
Magnús Már Einarsson

Joe Hart til Burnley (Staðfest)

Mættur til Burnley.

Mættur til Burnley.

Canon

Mynd: Burnley

Burnley hefur keypt markvörðinn Joe Hart í sínar raðir frá Manchester City.
Kaupverðið er í kringum 3,5 milljónir punda en Hart skrifaði undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.

Hart hefur ekki verið í myndinni hjá Manchester City síðan Pep Guardiola tók við liðinu árið 2016.

Á síðasta tímabili var Hart á láni hjá West Ham og á þarsíðasta tímabili var hann í láni hjá ítalska félaginu Torino.

Nick Pope, markvörður Burnley, meiddist illa á öxl á dögunum en auk hans er markvörðurinn Tom Heaton á mála hjá félaginu. Burnley er því með þrjá markverði innan sinna raða sem hafa verið viðloðandi enska landsliðið undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.