07.08.18 - 19:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lerma dýrastur í sögu Bournemouth (Staðfest)

Lerma er kominn í rautt og svart.

Mynd: Bournemouth

Lerma er kominn í rautt og svart.

Mynd: Bournemouth
Kólumbíski miðjumaðurinn Jefferson Lerma er búinn að semja við Bournemouth.
Hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins, kostar 25 milljónir punda. Hann bætir met Nathan Ake frá síðasta sumari. Ake kostaði 20 milljónir punda þegar hann kom frá Chelsea.

Lerma skrifar undir fjögurra ára samning við Bournemouth.
Lerma er 23 ára Kólumbíumaður en hann spilaði alla leiki þjóðar sinnar á HM í sumar. Lemar hefur leikið með Levante frá 2015. Hann bað um sölu í síðustu viku.
Bournemouth hefur keypt spænska vinstri bakvörðinn Diego Rico frá Leganes og þá kom velski miðjumaðurinn David Brooks frá Sheffield United.
Bournemouth hafnaði í 12. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Liðið mætir Cardiff í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi.

Welcome to #afcb, @jeffersonlerma! 🍒 pic.twitter.com/AnWv4A2pf3
— AFC Bournemouth 🍒 (@afcbournemouth) August 7, 2018