Fotbolti.net
07.08.18 - 20:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Matej Vydra til Burnley (Staðfest)

Matej Vydra til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley var að kaupa tékkneska sóknarmanninn Matej Vydra frá Derby County í Championship-deildinni.
Vydra skrifaði undir þriggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár. Kaupverðið er ekki gefið upp en í breskum fjölmiðlum er talað um að Burnley borgi í kringum 11 milljónir punda.

Vydra var á síðasta tímabili markahæsti leikmaður Championship-deildarinnar með 21 mark. Derby endaði í sjötta sæti. Derby tapaði í umspili fyrir Fulham.

Vydra spilaði síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2013/14 með West Brom en þá náði hann sér ekki á strik og skoraði aðeins þrjú mörk í 23 leikjum.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Burnley fær í sumar. Miðvörðurinn Ben Gibson kom frá Middlesbrough og markvörðurinn Joe Hart kom frá Manchester City fyrr í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.