Fotbolti.net
07.08.18 - 11:11
Magnús Már Einarsson

Spænskur miðjumaður í Víking Ó. (Staðfest)

Ólsarar fá liðsstyrk.

Ólsarar fá liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið spænska miðjumanninn Jesus Alvarez Marin í sínar raðir fyrir toppbaráttuna sem er framundan í Inkasso-deildinni.
Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokaði í síðustu viku en félög hafa viku til að ganga frá félagaskiptum erlendis frá.

Ólafsvíkingar höfðu sent félagaskipti Jesus út í tæka tíð og hann fékk leikheimild í dag.

Jesus er 25 ára gamall en hann lék síðast með Malaka í spænsku E-deildinni.

Ólafsvíkingar urðu fyrir blóðtöku undir lok félagaskiptagluggans þegar Breiðablik kallaði miðjumanninn Alexander Helga Sigurðarson til baka úr láni.

Alexander Helgi hefur spilað vel með Ólafsvíkingum í sumar en Jesus á að hjálpa til við að fylla skarð hans.

Jesus gæti spilað sinn fyrsta leik með Víkingi annað kvöld þegar liðið mætir Haukum á heimavelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.