Arsenal hefur selt varnarmanninn Carl Jenkinson til Nottingham Forest en þetta var staðfest í dag.
Kaupverðið ku vera í kringum tvær milljónir punda en Jenkinson skrifaði undir þriggja ára samning hjá Nottingham Forest.
Jenkinson hefur verið hjá Arsenal síðan árið 2011 en hann hefur lítið spilað með liðinu undanfarin ár.

Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur undanfarin tímabil farið á lán til West Ham United og Birmingham.
Jenkinson kom til Arsenal frá Charlton á sínum tíma en hann lék einungis 41 deildarleik á tíma sínum hjá skyttunum.
Athugasemdir