Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 07. ágúst 2019 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Djibril Sidibe á láni til Everton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Heimsmeistarinn Djibril Sidibe er kominn til Everton á láni frá Mónakó.

Everton mun hafa forkaupsrétt á bakverðinum sem var hluti af liði Frakklands sem varð Heimsmeistari á síðasta ári.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem gengur í raðir Everton í sumar. Áður hafði Everton fengið markvörðinn Jonas Lössl, miðjumennina Andre Gomes, Fabian Delph og Jean-Philippe Gbamin, og sóknarmanninn Moise Kean.

Hjá Everton verður hinn 27 ára gamli Sidibe liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðarssonar.

Everton hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardag gegn Crystal Palace á útivelli.

Sjá einnig:
Spáin fyrir enska - 7. sæti
Athugasemdir
banner
banner
banner