07.08.19 - 12:22
Elvar Geir Magnússon
Ibrahim Amadou til Norwich (Staðfest)

Ibrahim Amadou.

Mynd: Getty Images

Ibrahim Amadou.

Mynd: Getty Images
Norwich City hefur fengið til sín varnarsinnaðan miðjumann, Ibrahim Amadou, frá spænska félaginu Sevilla.
Hann kemur á eins árs lánssamningi en Norwich, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, fær svo forkaupsrétt á honum eftir tímabilið.
Amadou er 26 ára og getur einnig leikið sem miðvörður.
Hann kemur á eins árs lánssamningi en Norwich, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, fær svo forkaupsrétt á honum eftir tímabilið.
Amadou er 26 ára og getur einnig leikið sem miðvörður.
„Ég er ánægður með að vera kominn í ensku úrvalsdeildina. Þetta er ný áskorun fyrir mig. Það hefur verið markmið mitt að spila á Englandi," segir þessi fyrrum unglingalandsliðsmaður Frakklands.
Norwich mætir Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á föstudag.
Norwich mætir Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á föstudag.
