Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. ágúst 2019 13:45
Elvar Geir Magnússon
Liverpool lánar Awoniyi í sjötta sinn (Staðfest)
Taiwo Awoniyi.
Taiwo Awoniyi.
Mynd: Liverpool
Liverpool hefur lánað sóknarmanninn Taiwo Awoniyi til Mainz í Þýskalandi en þetta er í sjötta sinn sem þessi 21 árs Nígeríumaður er lánaður frá Liverpool.

Hann hefur ekki fengið atvinnuleyfi í Bretlandi en möguleiki er á að hann muni aldrei spila fyrir Liverpool.

Hann hefur meðal annars verið lánaður til Royal Excel Mouscron og Gent í Belgíu.

Liverpool hefur einnig lánað varnarmanninn Nathaniel Phillips sem er kominn til Stuttgart. Phillips, sem er 22 ára, gerði langtímasamning við Liverpool áður en hann var sendur á lán.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner