Fotbolti.net
07.08.19 - 20:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Man City kaupir Cancelo og Danilo fer til Juventus (Staðfest)

Joao Cancelo.

Joao Cancelo.

Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City hafa gengið frá kaupum á portúgalska bakverðinum Joao Cancelo.
Hinn 25 ára gamli Cancelo kemur frá Juventus fyrir 60 milljónir punda og fer brasilíski bakvörðurinn Danilo í hina áttina fyrir tæpar 35 milljónir punda.

Cancelo skrifaði undir samning til 2025 við Manchester City.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem City kaupir í sumar. Einnig hafa Spánverjarnir Rodri og Angelino komið til félagsins.

„City er frábært félag, með magnaðan knattspyrnustjóra og ég er mjög glaður að vera kominn hingað," sagði Cancelo.

City keypti Danilo frá Real Madrid fyrir 26,5 milljónir punda sumarið 2017. Hann er 28 ára og spilaði 34 leiki fyrir City yfir tvö tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Félagaskiptaglugginn á Englandi lokar á morgun.

Danilo.

Danilo.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.