07.08.19 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Man City kaupir efnilegan leikmann frá Sporting (Staðfest)

Felix Correia

Mynd: Getty Images

Felix Correia

Mynd: Getty Images
Enska meistaraliðið Manchester City hefur gengið frá kaupum á portúgalska leikmanninum Felix Correia frá Sporting.
Correia er 18 ára gamall var magnaður með U17 ára landsliði Portúgal í sumar er liðið fór alla leið í úrslit en Man City kaupir hann á 3,5 milljónir evra. Kaupverðið getur hækkað upp í 15,5 milljónir evra.
Hann spilaði ekki leik fyrir aðallið Sporting en City mun lána leikmanninn til Hollands við fyrsta tækifæri svo hann öðlist reynslu.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem City fær í sumar en Rodri kom frá Atlético Madrid, Angelino frá PSV og þá kom Zack Steffen frá Columbus Crew í MLS-deildinni en var lánaður strax til Fortuna Dusseldorf. Joao Cancelo semur þá við félagið í dag.