Fotbolti.net
07.08.19 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Reading kaupir þrjá leikmenn (Staðfest) - Puscas á leiðinni frá Inter

George Puscas er að semja við Reading

George Puscas er að semja við Reading

Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Reading gekk frá samningum við þrjá leikmenn í gær en Pele, Lucas Joao og Rafael Cabral eru allir komnir og þá er rúmenski framherjinn George Puscas á leiðinni.
Pele er 27 ára gamall miðjumaður og er á mála hjá Mónakó en hann hefur verið hjá liðum á borð við Milan, Benfica og hefur nú gert lánssamning við Reading út tímabilið.

Brasilíski markvörðurinn Rafael Cabral er þá kominn frá Sampdoria en hann hefur spilað með liðum eins og Santos og Napoli. Hann gerði þriggja ára samning við Reading í dag.

Þá er Lucas Joao kominn frá Swansea en þessi ágæti framherji gerir fjögurra ára samning við Reading.

Rúmenski framherjinn George Puscas er þá á leiðinni frá Inter en hann skoraði 4 mörk fyrir U21 árs landslið Rúmeníu á Evrópumótinu í sumar. Hann var annar markahæsti leikmaðurinn og því mikill fengur fyrir Reading.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.