Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. ágúst 2019 14:35
Elvar Geir Magnússon
Watford kynnir Welbeck (Staðfest)
Welbeck er orðinn leikmaður Watford.
Welbeck er orðinn leikmaður Watford.
Mynd: Watford
Watford hefur staðfest kaup á sóknarmanninum Danny Welbeck sem kemur á frjálsri sölu eftir að Arsenal lét hann fara.

Welbeck er 29 ára gamall, fyrrum sóknarmaður Manchester United, en hann ökklabrotnaði illa í nóvember í fyrra og var í kjölfarið frá keppni út tímabilið.

Watford hafnaði í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og verður fróðlegt að sjá hvort Welbeck nái að hjálpa liðinu að komast ofar.



Athugasemdir
banner
banner