07.08.26 - 22:34
Hafþór Örn Laursen
Kiddi Freyr: Á þessum tímapunkti á mínum ferli var kominn tími til að skipta
Auglýsing

Kristinn Freyr Sigurðsson, nýr leikmaður Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr Sigurðsson spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Aftureldingu í kvöld gegn Grindavík, og sinn fyrsta leik síðan 22. september í fyrra þegar Valur tók á móti Breiðablik, en Kiddi, eins og hann er oft kallaður, hefur glímt við erfið meiðsli síðan þá.
Fréttaritari Fótbolta.net var á svæðinu og tók viðtal við kappann.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 1 Grindavík
„Mér líður frábærlega, markmiðið tókst að sigra leikinn og erum mjög sáttir með þessi þrjú stig.''
Eins og kom fram fyrir ofan, þá var þetta fyrsti leikur Kidda síðan 22. september í fyrra.
„Ég hef verið í smá brekku, en að koma í Aftureldingu og að spila fyrsta leikinn minn í helvíti langan tíma er æðislegt og ég gæti ekki verið ánægðari.''
Kiddi var kynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar fyrir svolitlu síðan, en hann skrifar undir samning út keppnistímabilið 2027.
„Á þessum tímapunkti á mínum ferli var bara kominn tími til að skipta yfir í þar sem þetta byrjaði, svo sjáum við til hvað það verður lengi. Ég gæti ekki verið sáttari að vera kominn í minn heimabæ og koma inn í frábæra liðsheild sem Afturelding er með og fótboltinn sem þeir spilar er æðislegur og hentar mér vel.''
Valur hefur átt brattann að sækja í Bestu Deildinni, en þeir hafa tapað fjórum leikjum í röð og sitja í 6. sæti með 19 stig eftir 17 umferðir.
„Það verða einhverjar breytingar hjá Val eftir tímabilið. Þeir eru með fullt af reynslumiklum leikmönnum sem vita um hvað þetta allt snýst og þeir munu alltaf koma sterkir til baka eftir smá mótlæti.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

TENGT EFNI
Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"