07.09.16 - 10:32
Magnús Már Einarsson
Nicklas Bendtner til Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur gert tveggja ára samning við danska framherjann Nicklas Bendtner.
Fawaz Al-Hasawi, formaður og eigandi Forest, staðfesti þetta nú rétt í þessu.

„Bjóðið velkominn Nicklas Bendtner sem er kominn til #NFFC á tveggja ára samning,\" sagði Al-Hasawi á Twitter.
Bendtner hefur verið án félags síðan samningur hans hjá Wolfsburg rann út í sumar.
Þessi 28 ára gamli leikmaður mætir nú líklega sínum gömlu félögum í Arsenal eftir tvær vikur í enska deildabikarnum.