Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 07. september 2020 18:00
Elvar Geir Magnússon
Pólverji með flautuna á morgun - Hefur dæmt áður hjá landsliðinu
Icelandair
Pawel Raczkowski.
Pawel Raczkowski.
Mynd: Getty Images
Pólski dómarinn Pawel Raczkowski verður með flautuna á morgun. Hann er 37 ára og hefur verið FIFA dómari síðan 2013.

Pawel dæmir í pólsku úrvalsdeildinni en hefur einnig dæmt í Japan og Sádi-Arabíu.

Hann dæmdi tvo leiki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

Pawel hefur áður dæmt landsleik hjá Íslandi en hann dæmdi vináttulandsleik Slóvakíu og Íslands í Zilina árið 2015.

Slóvakía vann þann leik 3-1 en Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslands. Smelltu hér til að lesa nánar um þann leik.

Leikur Belgíu og Íslands verður klukkan 18:45 annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner