Brynjar Kristmunds: Því miður erum við ekki í Danmörku

Brynjar Kristmundsson, þjálfari Stjörnuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Kristmundsson, þjálfari Stjörnuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frábær frammistaða hjá strákunum. Byrjuðu leikinn ekkert sérstaklega vel en þegar við náðum fyrsta markinu inn þá róuðust hlutirnir,'' segir Brynjar Kristmundsson, þjálfari Stjörnuna, eftir 6-0 sigur gegn Val í loka umferð Bestu deildinni
Það var lítið að spilast fyrir í þessum leik en það stoppaði ekki leikmenn Stjörnuna
„Við vildum bara enda tímabilið vel. Við vildum fara inn í þetta frí með eitthvað jákvætt. Þetta er búið að vera langt og skrítið tímabil þannig að við vildum enda þetta vel. Þegar við vorum komin með þrjú mörk þá fórum við að ræða á bekknum hvort það væri séns að ná í Forsetabikarinn og það var einhverskonar mótivering að ná því. Því miður erum við ekki í Danmörku þar sem þetta myndi gefa okkur Evrópusæti,''
„Að ná þessum sigri og frammistöðu, fá að kveðja góða menn og sjá til dæmis Breka vera í hafsent 15 ára gamall, bara geðveikt. Við sáum kynslóðaskiptingu gerast og gaman að vera partur af því.''
Brynjar rifjar upp tímabilið hjá Stjörnunni.
„Bara skrítið, fyrir mig þá kem ég inn í Stjörnuna til að þjálfa yngri flokkana og svo í aðstoða þjálfara og fer svo í þetta hlutverk. Þetta er búið að vera erfitt fyrir alla,''
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
