07.10.16 - 12:48
Magnús Már Einarsson
Gústi Gylfa og Gunni Sig framlengja við Fjölni (Staðfest)

Ágúst Þór Gylfason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Þór Gylfason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Fjölnis, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Ágúst hefur stýrt Fjölni frá því árið 2012 og liðið hefur vaxið undir hans stjórn.
Árið 2013 fór Fjölnir upp í Pepsi-deildina og í ár endaði það í 4. sæti deildarinnar sem er besti árangurinn í sögu félagsins.
Gunnar Sigurðarson, markmannsþjálfari Fjölnis, hefur einnig framlengt samning sinn.
Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari Fjölnis, er hins vegar líklega á leið til FH sem aðstoðarþjálfari eins og Fótbolti.net greindi frá í dag.

Fréttatilkynning frá Fjölni:
Það er okkur Fjölnismönnum ánægjuefni að tilkynna að Ágúst Þór Gylfason hefur framlengt samning við Fjölni til 2018 og mun því stýra Grafarvogsliðinu áfram næstu tvö árin a.m.k. Samhliða þessu hefur Gunnar Sigurðsson markmannsþjálfari einnig framlengt samning sinn við Fjölni til 2018.

Gunnar Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð