07.10.16 - 15:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Siggi Raggi hættur hjá Lilleström (Staðfest)

Sigurður Ragnar mun róa á önnur mið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar mun róa á önnur mið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur lokið störfum sem aðstoðarþjálfari hjá Lilleström, sem leikur í úrvalsdeildinni í Noregi, en hann hefur komist að samkomulagi um starfslokasamning við félagið.
Rúnar Kristinsson var í síðasta mánuði látinn taka pokann sinn sem aðalþjálfari Lillestöm og nú hefur Sigurður Ragnar fylgt í fótspor hans. Samkvæmt heimildum mbl.is vildi Lilleström halda Sigurði, en það var hans ákvörðun að óska eftir starfslokum.

„Ég hef átt yndislegan tíma hér í Lilleström en í kjölfar þjálfarabreytinga hjá félaginu fannst mér rétt að fela öðrum manni að taka við starfinu,“ segir Sigurður Ragnar við heimasíðu Lilleström, en hann og Rúnar Kristinsson tóku við þjálfun Lilleström fyrir síðasta tímabil.
Það er spurning hvað gerist núna hjá Sigurði, hvort hann komi heim eða haldi áfram að þjálfa erlendis. Líklegt þykir að kollegi hans, Rúnar Kristinsson, muni taka við KR-ingum á nýjan leik, en samkvæmt slúðurpakka númer 2 sem kom út nú fyrir stuttu, þá fundaði Rúnar með Vesturbæingum í vikunni.
Arne Erlandsen tók við þjálfun Lilleström af Rúnari, en liðið í bullandi fallhættu í norsku úrvalsdeildinni. Lilleström er í næstneðsta sæti deildarinnar þegar fjórum umferðum er ólokið, en stutt er í liðin í sætunum fyrir ofan.

Heimild: Heimasíða Lilleström