Fotbolti.net
07.10.17 - 17:36
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Bjarni Jó tekur við Vestra (Staðfest)

Bjarni við undirskriftina í dag

Bjarni við undirskriftina í dag

Canon

Mynd: Vestri

Knattspyrnudeild Vestra á Ísafirði kynnti nú rétt í þessu nýjan þjálfara meistaraflokks félagsins. Nýi þjálfarinn er Bjarni Jóhannsson.

Bjarni skrifar undir þriggja ára samning við Vestra en hann er gríðarlega reynslumikill þjálfari.

Hann hefur þjálfað lið eins og Grindavík, Breiðablik, Fylki, Stjörnuna, ÍBV og KA.

Bjarni þekkir örlítið til Vestra en hann spilaði fyrir félagið árin 1982 og 1983 og skoraði hann eitt mark.

<i>„Knattspyrnudeild Vestra er gríðarlega ánægt með þessa ráðningu og væntum við mikils af liðinum á komandi sumri undir handleiðslu Bjarna og teljum við þessa ráðningu sýna þann metnað sem deildin hefur,\"</i> segir í frétt af heimasíðu Vestra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.