Fotbolti.net
07.10.17 - 19:19
Elvar Geir Magnússon

Gregg Ryder áfram þjálfari Þróttar (Staðfest)

Gregg Ryder, þjálfari Þróttar.

Gregg Ryder, þjálfari Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Englendingurinn Gregg Ryder hefur endurnýjað samning sinn við Þrótt til tveggja ára. Hann hefur þjálfað Þróttara síðustu þrjú tímabil.

Á hans fyrsta tímabili kom hann liðinu upp í Pepsi-deildina en liðið fór beint niður aftur. Það hafnaði í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar í sumar og var fjórum stigum frá öðru sætinu.
Í lok tímabilsins, þegar Gregg var spurður út í framtíð sína, svaraði hann:

„Það sem er mikilvægast í þessu er að félagið hafi metnaðinn í það að komast upp í Pepsi deildina og halda sér þar. Það gerum við með því að fá inn góða leikmenn og vera með góða yngri flokka. Ef að stjórnin er sammála mér í þessu erum við í flottum málum,\" sagði Gregg.

Haraldur Agnar Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar Þróttar, sagði við heimasíðu félagsins í dag:

„Gregg er flinkur, vinnusamur og kraftmikill stjórnandi. Hann er sömuleiðis að verða hokinn af reynslu þrátt fyrir ungan aldur, en kappinn er ekki ennþá orðinn þrítugur. Þessi geðþekki Newcastle-maður verður áfram í okkar röðum næstu árin og við erum mjög hamingjusöm með þá niðurstöðu. Gregg er okkar maður,\" segir Haraldur Agnar.

„Ég er himinlifandi og virkilega þakklátur fyrir nýja samninginn og vil nota tækifærið til að hrósa enn og aftur mannskapnum kringum félagið, allt frá stjórn, formanni knattspyrnudeildar og stjórnenda klúbbsins til leikmanna og stuðningsfólks. Þetta er einstakur hópur sem hefur gríðarlegan metnað fyrir hönd félagsins og hérna líður mér vel,\" sagði Gregg Oliver við undirritun samningsins.

„Ég hef verið hjá félaginu í nokkuð mörg ár, en get þó óhikað fullyrt á þessum tímapunkti, að framtíðin hefur aldrei verið bjartari. Ég fæ núna kærkomið tækifæri til að fá til Þróttar gæðaleikmenn til að styrkja hörkugóðan leikmannahóp okkar enn frekar og það skiptir lykilmáli.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.