07.10.17 - 10:46
Arnar Daði Arnarsson
Landsliðsþjálfari Króata rekinn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru heldur betur tíðindi úr herbúðum króatíska landsliðsins því króatíska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt að landsliðsþjálfarinn, Ante Cacic hafi verið rekinn úr starfi og klári ekki undankeppni HM.
Króatar töpuðu tveimur dýrmætum stigum í baráttunni um efsta sætið í I-riðlinum í gærkvöldi þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Finnum.

Sigur Íslands í Tyrklandi kom Íslandi uppfyrir Króata en liðin voru jöfn á stigum fyrir leikina í gærkvöldi.
Knattspyrnusamband Króatíu fundaði eftir leikinn seint í gærkvöldi og komst að þeirri niðurstöðu að Ante Cacic myndi ekki stýra Króötum í lokaleiknum gegn Úkraínu á mánudagskvöldið í Úkraínu.
Króatía þarf sigur í þeim leik og treysta á að Íslandi vinni ekki Kosovó á heimavelli til að ná 1. sætinu. Jafntefli hjá Króatíu tryggir þeim 2. sætið og þar með umspilssæti en tapi liðið eru draumar þeirra um sæti á HM úr sögunni.
Ekki er vitað hver stýrir Króötum í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu á mánudaginn.