Fotbolti.net
07.10.17 - 10:59
Arnar Daði Arnarsson

Óli Palli hættur hjá FH (Staðfest) - Tekur hann við Fjölni?

Ólafur Páll er hættur sem aðstoðarþjálfari FH.

Ólafur Páll er hættur sem aðstoðarþjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ólafur Páll Snorrason hefur tekið þá ákvörðun að stíga til hliðar sem aðstoðarþjálfari FH,\" þetta segir í fréttatilkynningu sem FH birtir á Facebookar-síðu sinni.

Þessi tilkynning birtist innan við sólarhring eftir að Heimir Guðjónsson þjálfari FH til margra ára var látinn taka poka sinn.
„Knattspyrnudeild FH vill fá að þakka Óla Palla fyrir hans störf hjá félaginu og óskar honum velfarnaðar. Óli Palli vill einnig fá að koma að þökkum til allra hjá félaginu, leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum fyrir gott samstarf,\" segir jafnframt í tilkynningunni en Ólafur Páll tók við sem aðstoðarþjálfari hjá FH fyrir síðasta tímabil af Guðlaugi Baldurssyni.

Áður var Ólafur Páll spilandi aðstoðarþjálfari hjá Fjölni en hann lék einnig með FH tímabilin 2009 - 2014. Það verður því glænýtt þjálfarateymi hjá FH í Pepsi-deildinni sumarið 2018.

Ólafur Páll er sterklega orðaður við aðalþjálfarastarfið hjá Fjölnismönnum eftir að Ágúst Gylfason tók við Breiðabliki. Háværar sögusagnir eru um að Ólafur hafi fundað með Grafarvogsfélaginu og eru fréttirnar úr Hafnarfirðinum olía á eldinn í þeirri umræðu.

FH hafnaði í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en Fjölnir í tíunda sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.