07.10.18 - 23:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi tróð sokk í greinarhöfund staðarblaðsins í Leicester

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt af mörkum tímabilsins þegar hann tryggði Everton sigur gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Gylfi tók frábæran snúning og smellhitti boltann langt utan af velli.
„Þeir voru mjög varnarsinnaðir og það var erfitt að brjóta þá niður. Um leið og ég sá tækifæri til að skjóta hugsaði ég með mér 'hví ekki?' og sem betur fer fór boltinn í netið," sagði Gylfi eftir leikinn.
„Þetta er klárlega eitt af mínum bestu mörkum. Það kom á mjög mikilvægum tíma og ég er verulega ánægður með þetta mark."
Markið er hægt að sjá með að smella hér.
Daginn fyrir leikinn var skrifuð grein um Gylfa í staðarblaðinu í Leicester, Leicester Mercury þar sem var fjallað var um það að Leicester hefði haft heppnina með sér að sleppa við að borga 45 milljónir punda fyrir Gylfa. Það var verðið sem Everton borgaði fyrir íslenska miðjumanninn en Leicester reyndi líka að fá hann og bauð mest 40 milljónir punda.
Talað er um það í greininni að Gylfi hafi ekki skilað því sem ætlast var af honum á síðasta tímabili en að hann sé aðeins farinn að hressast núna á þessu tímabili.
Leicester keypti James Maddison frá Norwich á helmingi lægri upphæð en Gylfi kostaði. Maddison hefur reynst Leicester vel og er góður leikmaður en Gylfi sýndi það í gær að hann er leikmaður stútfullur af gæðum og það var alls engin heppni fyrir Leicester að sleppa við það að borga fyrir hann. Gylfi tróð góðum sokk ef svo má að orði komast.
Gylfi fékk hrós frá mönnum eins og John Hartson og Gary Lineker í gær. Ekki amalegt.

— jarrodwills EFC/STG (@jarrodwills) October 7, 2018
Gylfi fékk hrós frá mönnum eins og John Hartson og Gary Lineker í gær. Ekki amalegt.
Always said Sigurdsson is a special player.. what a goal technically he is right up there with the best in the game 👏🏻👍🏻
— John Hartson (@JohnHartson10) October 6, 2018
An absolutely stunning goal from Sigurdsson gives Everton the lead at Leicester. Credit where it’s due. Worth seeing on @BBCMOTD tonight.
— Gary Lineker (@GaryLineker) October 6, 2018