Fotbolti.net
07.10.18 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Korkut rekinn frá Stuttgart (Staðfest)

Korkut rekinn frá Stuttgart (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tayfun Korkut er fyrsti þjálfarinn til að vera rekinn á tímabilinu í Bundesligunni, efstu deild þýska boltans.
Korkut er 44 ára Tyrki sem tók við Stuttgart í janúar og stýrði liðinu frá falli á síðasta tímabili.

3-1 tap gegn Hannover á laugardaginn var dropinn sem fyllti mælinn og ákvað stjórnin að reka Korkut.

Stuttgart er á botni deildarinnar með fimm stig eftir sjö umferðir og á liðið næst heimaleik við Borussia Dortmund eftir landsleikjahlé.

Korkut, sem lék 42 landsleiki fyrir Tyrkland á sínum tíma, stýrði U19 liði Stuttgart 2011-12 en yfirgaf félagið til að gerast aðstoðarþjálfari tyrkneska landsliðsins.

Undanfarin ár hefur Korkut stýrt Hannover, Kaiserslautern og Bayer Leverkusen en nú er hann atvinnulaus á ný.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.