Fotbolti.net
07.10.18 - 19:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rafn Markús verður áfram með Njarðvík (Staðfest)

Orðaður við Keflavík en heldur tryggð við Njarðvíkinga

Rafn Markús og Snorri Már.

Rafn Markús og Snorri Már.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rafn Markús Vilbergsson hefur verið orðaður við Keflavík eftir að tímabilinu hér á Íslandi lauk en í kvöld varð það ljóst að hann verður áfram þjálfari Njarðvíkur.
Hann mun stýra Njarðvík áfram, ásamt Snorra Má Helgasyni.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Njarðvíkur.

„Rafn Vilbergsson og Snorri Már Jónsson skrifuðu undir nýjan tveggja ára samning um þjálfun meistaraflokks í dag. Þeir félagar tóku við meistaraflokki fyrir tveimur árum síðan og liðið sigraði 2. deildinna 2017 og endaði í 6. sæti í Inkasso-deildinni á ný liðnu tímabili."

„Undirbúningur fyrir næsta tímabil hefst um næstu mánaðarmót og er nú verið að vinna í leikmannamálum. Stjórn deildarinnar fagnar því að samningar séu í höfn og við bjóðum þá félaga velkomna til starfa á ný."

Njarðvík endaði í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar í sumar. Það er frábær niðurstaða fyrir Njarðvíkinga að halda þessum þjálfurum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.