Argentínski knattspyrnumaðurinn Ezequiel Esperon lést í gær eftir að hafa fallið fram af svölum.
Esperon var aðeins 23 ára gamall en hann hafði verið á mála hjá liðum á borð við Internacional og Gremio í Brasilíu. Hann var þá á láni hjá mexíkóska liðinu Atlante á síðustu leiktíð.
Hann var í teiti með félögum sínum í Buenos Aires í Argentínu er hann féll fram af svölum á sjöttu hæð.
Esperon var fluttur á sjúkrahús en var stuttu síðar úrskurðaður látinn. Hann ólst upp hjá All Boys í Argentínu en félagið minnist hans á Twitter í dag.
El Club Atlético #AllBoys lamenta el fallecimiento del ex jugador de la institución, formado en nuestras divisiones inferiores, Ezequiel Esperón.
— Club Atlético All Boys (@caallboys) October 7, 2019
Nuestras condolencias a sus familiares, seres queridos y amigos. pic.twitter.com/Ax09hmHxxt
Athugasemdir