
U17 landslið kvenna mætti Sviss í dag og þurfti að sætta sig við svekkjandi tap.
Leikurinn fór fram á Valentino Mazzola á Ítalíu og hófst hann klukkan tíu að íslenskum tíma. Ísland gerði 3-3 jafntefli við Ítalíu í fyrstu umferð, en það lið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B-deild undankeppninnar.
Sviss tók forystuna snemma en Emelía Óskarsdóttir jafnaði metin fyrir íslenska liðið fyrir leikhlé.
Sviss var hins vegar sterkari aðilinn í seinni hálfleiknum og náði að landa góðum sigri, 1-3.
Frakkland er á botni riðilsins eins og er, án stiga, en þær mæta Ítalíu síðar í dag. Ísland er með eitt stig en þrjú efstu lið riðilsins fara áfram á næsta stig. Þetta skýrist allt í lokaumferðinni.
Ísland leikur við Frakkland í lokaleik sínum í riðlinum á mánudag.
Byrjunarlið U17 kvenna sem mætir Sviss í fyrstu umferð undankeppni EM 2023.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 7, 2022
Leikurinn hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með textalýsingu frá honum á vef UEFA.https://t.co/DMCHf6sCGy
Our U17 women starting lineup against Switzerland.#dottir pic.twitter.com/cmQ2SNqJUY
Athugasemdir