07.11.16 - 18:37
Jóhann Ingi Hafþórsson
Trausti Sigurbjörns kominn í Hauka (Staðfest)
- Barros framlengdi

Trausti Sigurbjörnsson við undirskriftina.

Mynd: Haukar

Trausti Sigurbjörnsson, fyrrum markmaður Þróttar og ÍA, er genginn til liðs við Hauka.
Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið en hann hefur undanfarin fimm ár verið í Þrótti.
Trausti er 26 ára gamall og uppalinn á Skaganum. Hann var valinn í lið 1. deildarinnar árið 2015 er Þróttur fór upp um deild.
„Við teljum það bera vott um metnað hjá Haukum að fá markvörð eins og Trausta til okkar. Markmiðin eru skýr og erum við að senda ákveðin skilaboð með þessum samning,“ segir Halldór Jón Garðarsson stjórnarmaður og upplýsingafulltrúi hjá Haukum.
Framherjinn Elton Renato Livramento Barros hefur svo skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið. Hann kom upprunalega til landsins og lék með Selfyssingum en hann stóð sig vel hjá Haukum á síðasta tímabili.