Fotbolti.net
07.11.26 - 11:58
Brynjar Ingi Erluson

Neymar eldri ráðinn framkvæmdastjóri Santos

Neymar eldri ráðinn framkvæmdastjóri Santos
Canon

Mynd: EPA

Faðir brasilísku fótboltagoðsagnarinnar Neymars hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Santos í heimalandinu, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Félagið hefur ákveðið að ráða hann út árið með möguleika á að framlengja samninginn til ársins 2029, verði Marcelo Teixeira endurkjörinn forseti félagsins.

Faðir Neymars hefur verið umboðsmaður sonar síns allan ferilinn og átt stóran þátt í velgengni hans, ekki síst þegar kemur að markaðssetningu. Nafn Neymars hefur í raun verið byggt upp eins og stórt fyrirtæki, líkt og fjallað var um í heimildarmynd um leikmanninn.

Neymar-fjölskyldan hefur sterk tengsl við Santos, þar sem Neymar hóf feril sinn og mun líklega einnig ljúka honum. Hann leikur nú aftur með brasilíska félaginu eftir að hafa áður verið hjá Barcelona, Paris Saint-Germain og Al Hilal.

Neymar eldri hefur nú tekið við starfi framkvæmdastjóra og mun starfa náið með Teixeira. Ráðningin þykir jafnframt til marks um að Neymar-fjölskyldan sé ánægð með núverandi stjórn félagsins og vilji halda samstarfinu áfram.

Hann mun þó ekki hafa yfirumsjón með leikmannamálum heldur fyrst og fremst sinna markaðsmálum, viðskiptatengdum verkefnum og öðrum þáttum í rekstri félagsins.

NR Sports, umboðsskrifstofa Neymars eldri, hefur þegar komið Santos til aðstoðar. Skrifstofan hjálpaði félaginu að komast hjá banni frá FIFA vegna skuldar við franska félagið Mónakó og tekur einnig þátt í verkefni sem miðar að því að bæta æfingaaðstöðu Santos.

Eins og áður segir mun Neymar eldri gegna starfi framkvæmdastjóra út desember, en framtíð hans hjá félaginu mun ráðast 12. desember þegar forsetakosningar Santos fara fram. Verði Teixeira endurkjörinn gæti samningur hans verið framlengdur til ársins 2029.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.