Fotbolti.net
07.11.26 - 11:31
Brynjar Ingi Erluson

Tekur við fyrirliðabandinu af Ronaldo

Bernardo Silva er nýr fyrirliði portúgalska landsliðsins

Bernardo Silva er nýr fyrirliði portúgalska landsliðsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jorge Jesus, þjálfari portúgalska landsliðsins, hefur valið nýjan fyrirliða eftir að Cristiano Ronaldo ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna, en Bernardo Silva mun taka við fyrirliðabandinu.
Jesus hafði ekki hugmynd um að Ronaldo ætlaði að hætta
TENGT EFNI

Jesus hafði ekki hugmynd um að Ronaldo ætlaði að hætta

Ronaldo greindi frá þeirri ákvörðun sinni að hætta að spila með portúgalska landsliðinu eftir 23 ára feril.

Ákvörðunin kom portúgalska fótboltasambandinu og Jesus í opna skjöldu, enda hafði Ronaldo ekki rætt við þjálfarann áður en hann tilkynnti hana. Búist hafði verið við að hann myndi snúa aftur í landsliðið eftir að hafa yfirgefið herbúðir þess í síðasta landsleikjaglugga.

Nú þegar Ronaldo hefur lagt landsliðsskóna á hilluna er komið að því að nýr fyrirliði taki við keflinu og verður það Silva sem fær það hlutverk.

Hann hefur gegnt lykilhlutverki í portúgalska landsliðinu undanfarin ár og verið einn besti sóknarsinnaði miðjumaður heims.

Bernardo vann fjölmarga titla með Manchester City áður en hann gekk til liðs við Real Madrid í sumar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.