Fotbolti.net
07.12.12 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Jón Daði í Viking (Staðfest)

Jón Daði í Viking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við norska félagið Viking.

Jón Daði stóðst læknisskoðun hjá Viking í morgun og hann er nú kominn í raðir félagsins frá Selfyssingum.
Þessi tvítugi leikmaður fór á kostum með Selfyssingum í Pepsi-deildinni í sumar og var eftir tímabilið valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Í haust æfði Jón Daði með Viking sem og með Djurgarden í Svíþjóð og Silkeborg í Danmörku. Á endanum ákvað hann hins vegar að ganga í raðir Viking.

,,Jón Daði er spennandi ungur leikmaður sem getur spilað allar þrjár framherjastöðurnar hjá okkur,\" sagði Kjell Jonevret þjálfari Viking á dögunum.

Viking endaði í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en Indriði Sigurðsson leikur með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.