Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. desember 2018 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Björgvin Karl nýr þjálfari Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis F (Staðfest)
Björgvin Karl Gunnarsson undirritar samninginn
Björgvin Karl Gunnarsson undirritar samninginn
Mynd: Heimasíða Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis F
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. í 2. deild kvenna hefur ráðið þjálfara fyrir næstu tvö tímabil en Björgvin Karl Gunnarsson tekur við starfinu.

Steinar Ingi Þorsteinsson og Valdís Alla Sigurþórsdóttir stýrðu liðinu í sumar er liðið hafnaði í 6. sæti 2. deildar.

Björgvin Karl Gunnarsson hefur nú verið ráðinn og er samningurinn til tveggja ára.

Björgvin hefur áður þjálfað kvennalið Hattar og Fjarðabyggðar áður auk þess sem hann þjálfaði KR við góðan orðstír í bæði næst efstu deild og í Pepsi-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner