Knattspyrnudeild Sindra hefur staðfest ráðningu á Ingva Ingólfssyni sem þjálfara meistaraflokks karla.
Hinn afar reyndi Sinisa Kekic stýrði liðinu í sumar er liðið hafnaði í 9. sæti 3. deildar.
Félagið hefur leitað að eftirmanni hans undanfarnar vikur og hefur nú staðfest ráðningu á Ingva Ingólfssyni.
Ingvi leikur með Sindra en hann á yfir 140 leiki að baki fyrir félagið og verður hann spilandi þjálfari.
Hann þjálfaði áður meistaraflokk kvenna hjá Sindra og náði góðum árangri árið 2017 með liðið.
Athugasemdir